Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 806. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1221  —  806. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um löggæslumál í Mosfellsbæ, Grafarvogi og Grafarholti.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



     1.      Telur ráðherra að löggæslan, eins og hún er nú, sé næg til að tryggja öryggi íbúa í Mosfellsbæ, Grafarvogi og Grafarholti?
     2.      Telur ráðherra að eftirlit lögreglunnar að næturlagi sé nægt til að tryggja öryggi íbúa í Mosfellsbæ, Grafarvogi og Grafarholti?