Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 914. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1393  —  914. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um löggæslu á íþróttamótum.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



     1.      Telur ráðherra eðlilegt að mótshöldurum unglingalandsmóts Ungmennafélags Íslands sé gert að greiða lögreglustjóra fyrir gæslu meðan á móti stendur?
     2.      Hyggst ráðherra skylda alla sem standa fyrir íþróttamótum eða íþróttahátíðum til að greiða fyrir löggæslu?


Skriflegt svar óskast.