Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 938. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1428  —  938. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um flutning hættulegra efna um Hvalfjarðargöng.

Frá Guðjóni Guðmundssyni.



     1.      Hver er reynslan af reglum sem settar voru með auglýsingu lögreglustjórans í Reykjavík 10. apríl 2003 í framhaldi af ályktun Alþingis um flutning hættulegra efna um Hvalfjarðargöng?
     2.      Stendur til að endurskoða þessar reglur og takmarka enn frekar þessa flutninga?