Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 962. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1480  —  962. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um Samkeppnisstofnun.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



     1.      Hefur á síðustu tíu árum verið gerð úttekt á starfsemi Samkeppnisstofnunar og ef svo er, hver var niðurstaðan?
     2.      Hyggst ráðherra grípa til ráðstafana til að auka afkastagetu Samkeppnisstofnunar?


         
Skriflegt svar óskast.