Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 984. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1591  —  984. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Hvaða ríki hafa undirgengist og fullgilt sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu og hver ekki?
     2.      Ef Ísland er ekki meðal þeirra ríkja sem hafa undirgengist og fullgilt sáttmálann, hver er skýringin á því?
     3.      Hvaða ákvæði er að finna í sáttmálanum um gagnsæi í fjárreiðum stjórnmálaflokka og í stjórnsýslunni?


Skriflegt svar óskast.