Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 871. máls.
130. löggjafarþing 2003–2004.
Þskj. 1663  —  871. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. um meðferð opinberra mála, nr. 19 26. mars 1991, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta allsherjarnefndar (BjarnB, ArnbS, ÞES, GII, SKK).



     1.      Við 1. gr. Greinin orðist svo:
              1. og 2. mgr. 43. gr. laganna orðast svo:
             Verjandi skal jafnskjótt og unnt er fá endurrit af öllum skjölum sem málið varða, svo og aðstöðu til að kynna sér önnur gögn sem ekki verða endurrituð. Lögregla getur þó neitað að veita verjanda aðgang að einstökum skjölum eða öðrum gögnum í allt að þrjár vikur frá því að þau urðu til eða komust í vörslur hennar ef hún telur að það geti skaðað rannsókn málsins. Af sömu ástæðu er lögreglu heimilt að neita verjanda um endurrit af einstökum skjölum meðan á rannsókn máls stendur. Bera má þá synjun undir dómara.
             Þegar verjandi hefur fengið afhent endurrit af skjölum máls er honum heimilt að láta sakborningi í té eintak af endurriti eða kynna honum það með öðrum hætti.
     2.      Við 4. gr. Greinin orðist svo:
             2. málsl. b-liðar 1. mgr. 74. gr. a laganna orðast svo: Ef þörf krefur getur dómari framlengt frest skv. 1. mgr. 43. gr. í allt að fimm vikur svo að hægt verði að ljúka skýrslutöku innan hans.
     3.      Við bætist ný grein sem verði 5. gr., svohljóðandi:
             Lokamálsliður 1. mgr. 76. gr. laganna verður svohljóðandi: Sá sem á hagsmuna að gæta getur kært ákvörðun lögreglu til ríkissaksóknara innan eins mánaðar frá því að honum er tilkynnt um hana og skal ríkissaksóknari taka afstöðu til kærunnar innan eins mánaðar frá því að hún berst honum.
     4.      5. gr. orðist svo:
              A- og b-liður 86. gr. laganna orðast svo:
                  a.      að leggja fyrir síma- eða fjarskiptafyrirtæki að leyfa að hlustað sé á eða tekin séu upp símtöl eða önnur fjarskipti við tiltekinn síma eða fjarskiptatæki eða að öðrum kosti síma eða fjarskiptatæki í eigu eða umráðum tilgreinds manns,
                  b.      að fá upplýsingar hjá síma- eða fjarskiptafyrirtækjum um símtöl eða fjarskipti við tiltekinn síma eða fjarskiptatæki.
     5.      6. gr. falli brott.