Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 97. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 97  —  97. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um störf nefndar um eyðingu minka og refa.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hefur nefnd sem ráðherra skipaði um minka- og refaveiðar skilað niðurstöðum?
     2.      Hvenær má vænta þess að tillögur nefndarinnar um aðgerðir til að draga úr skaða af völdum refa verði kynntar?
     3.      Verður auknu fjármagni varið til þessa málaflokks til að koma til móts við stóraukinn kostnað sveitarfélaganna?