Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 101. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 101  —  101. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um frávísanir framhaldsskóla og háskóla.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Hve mörgum var vísað frá námi í framhaldsskólum í haust, sundurliðað eftir skólum, og hve margir sem hugðust snúa aftur til náms eftir að hafa hætt tímabundið námi fengu ekki inni í neinum skóla?
     2.      Hve mörgum var vísað frá námi í haust í Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands, sundurliðað eftir deildum?


Skriflegt svar óskast.