Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 107. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 107  —  107. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um uppbyggingu og rekstur safna.

Frá Kristjáni L. Möller.



    Hversu há hafa framlög úr ríkissjóði verið annars vegar til uppbyggingar og hins vegar til reksturs safna síðastliðin 10 ár? Svarið óskast sundurliðað eftir árlegum framlögum til hvers safns fyrir sig.


Skriflegt svar óskast.