Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 108. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 108  —  108. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um afsláttarkort.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hversu margir þeirra sem hafa greitt umfram hámark fyrir læknisþjónustu hafa sótt um afsláttarkort síðustu þrjú árin?
     2.      Er vitað hvort ákveðnir hópar sjúklinga sækja síður um afsláttarkort en aðrir eftir að réttur til þess hefur skapast?
     3.      Eru áform um að auðvelda þeim að nýta sér þennan rétt sem ekki geta vegna sjúkdóms eða fötlunar borið sig eftir honum?