Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 113. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 113  —  113. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um undirbúning í heilbrigðiskerfinu vegna umskorinna kvenna.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



    Hefur starfsfólk í heilbrigðiskerfinu verið undirbúið sérstaklega undir móttöku og þjónustu við konur sem hafa verið umskornar? Ef svo er, hvaða starfsfólk og í hverju hefur undirbúningurinn falist?