Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 114. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 114  —  114. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um sérhæfða þjónustu við yngri alzheimersjúklinga.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hvaða sérhæfð þjónusta stendur alzheimersjúklingum undir 67 ára til boða í heilbrigðiskerfinu?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að þessi hópur fái aðgang að hjúkrunarheimilum?