Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 133. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 133  —  133. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um símenntun.

Frá Merði Árnasyni.



    Telur ráðherra að þær tillögur sem ríkisstjórnin samþykkti í ágúst 1998 um átak í eflingu símenntunar, að fram komnu áliti sérstakrar nefndar um þau efni, séu í samræmi við það að gert hefur verið erfiðara en áður að hefja að nýju nám í framhaldsskóla og að kröfur um undirbúning fyrir háskólanám eru að þrengjast?