Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 179. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 179  —  179. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um framkvæmd reglugerðar um slátrun og meðferð sláturafurða.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.



     1.      Hvaða sláturhús hafa starfsleyfi frá ráðuneytinu án þess að uppfylla allar kröfur reglugerðar nr. 461/2003, um slátrun og meðferð sláturafurða? Hvaða kröfur eru ekki uppfylltar í hverju tilviki og hversu langur frestur hefur fengist til úrbóta?
     2.      Hve mörgum sláturhúsum hefur verið synjað um starfsleyfi á grundvelli þess að þau uppfylli ekki reglugerðina síðan hún tók gildi og hvaða ákvæði eru það sem hvert og eitt hefur ekki uppfyllt?


Skriflegt svar óskast.