Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 199. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 199  —  199. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um starfsmenn Bandaríkjahers á Keflavíkurvelli.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hvaða breytingar í stöðugildum hafa orðið á íslensku starfsliði Bandaríkjahers á Keflavíkurvelli frá 1. janúar 2003 til 1. október 2004?
     2.      Hver var fjöldi bandarískra hermanna á Keflavíkurvelli 1. janúar 2003 og 1. október 2004?
     3.      Hver var fjöldi bandarískra starfsmanna Bandaríkjahers á Keflavíkurvelli, annarra en hermanna, 1. janúar 2003 og 1. október 2004?