Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 213. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 215  —  213. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um stuðning við byggð og búsetu í Árneshreppi.

Frá Jóni Bjarnasyni.



    Hvað líður störfum nefndar sem ríkisstjórninni var falið að setja á stofn samkvæmt þingsályktun sem Alþingi samþykkti 15. mars 2003 og var ætlað að gera tillögur ,,um aðgerðir til verndunar búsetu og menningarlandslags í Árneshreppi í Strandasýslu“?