Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 217. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 220  —  217. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um útsendingar sjónvarps og hljóðvarps um gervitungl.

Flm.: Guðmundur Hallvarðsson, Halldór Blöndal, Drífa Hjartardóttir,


Einar K. Guðfinnsson, Hjálmar Árnason, Birkir J. Jónsson,


Kjartan Ólafsson, Bjarni Benediktsson, Ásta R. Jóhannesdóttir,


Mörður Árnason, Jón Gunnarsson,


Jón Bjarnason, Guðjón Guðmundsson.



    Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að láta gera á vegum Ríkisútvarpsins áætlun um árlegan kostnað við að senda dagskrár hljóðvarps og sjónvarps um gervitungl, svo og kostnað við búnað til að taka á móti þessum sendingum. Einnig komi fram áætlaður stofnkostnaður jarðstöðvar til að senda dagskrár til gervitungls og árlegur rekstrarkostnaður hennar.

Greinargerð.


    Mörg þúsund Íslendingar búa við þau skilyrði að hafa lélegan eða engan aðgang að útsendingum Ríkisútvarpsins, sjónvarps og hljóðvarps. Það á við um fólk í dreifðum byggðum víða um land, þar sem móttökuskilyrði eru slæm, og Íslendinga erlendis, en stærsti hópurinn er sjómenn á farskipum og fiskiskipum. Dreifikerfi Ríkisútvarpsins hefur verið byggt upp til að ná til byggðra bóla, til fólks með fasta búsetu árið um kring, og með lágmarkstilkostnaði. Talið er að á um 70 sveitabæjum séu léleg eða engin skilyrði til móttöku sjónvarpsins.
    Móttökuskilyrði sjónvarps hafa verið mjög misjöfn á hafinu umhverfis landið. Þau hafa verið allgóð frá Faxaflóa austur að Ingólfshöfða, afleit út af Austurlandi og gloppótt fyrir Norðurlandi, Vestfjörðum og suður fyrir Snæfellsjökul. Skilyrðin eru skárri þegar háþrýstisvæði er yfir landinu. Sjómenn segja að móttökuskilyrðin hafi versnað á undanförnum árum.
    Móttökuskilyrði hljóðvarps eru einnig misjöfn en bötnuðu mjög á hafinu með tilkomu langbylgjusendinga frá Gufuskálum og Eiðum, en um sendana þar er útvarpað blandaðri dagskrá Rásar 1 og Rásar 2. Þessar sendingar nást allt til Færeyja, eða u.þ.b. 500 sjómílur. Í sparnaðarskyni hafa langbylgjusendingar nýlega verið skertar.
    Það er mikið öryggismál að bæta sendingar ljósvakamiðlanna til fiskimiða og farskipaleiða, t.d. til að fylgjast með aðvörunum um hættu, svo sem fárviðrisspám og tilkynningum um ís. Bent hefur verið á að engin veðurspá er gerð fyrir siglingaleiðina Bandaríkin- Nýfundnaland-Ísland nema á Íslandi.
    Kunnugt er að Ríkisútvarpið hefur undanfarin ár átt í viðræðum við innlend og erlend fyrirtæki um sjónvarps- og útvarpssendingar um gervitungl. Einnig hefur Ríkisútvarpið staðið fyrir tilraunasendingum um gervitungl. Fyrstu tilraunasendingarnar hófust í október 2002 með efni frá kynningarmyndbandi en beinar sendingar fóru fram í tengslum við alþingiskosningarnar í maí 2003. Tilraunasendingarnar voru opnar en reglubundnar útsendingar á dagskrá sjónvarpsins þurfa að vera lokaðar af rétthafaástæðum og mun þá þurfa lykilkort til opnunar, auk hefðbundins búnaðar til móttöku gervitunglasendinga. Tilraunasendingarnar sýndu að tæknilega er ekkert því til fyrirstöðu að senda dagskrá sjónvarps (og þar með útvarps) um gervitungl og ná þar með til hópa Íslendinga sem eru utan dreifikerfisins á Íslandi. Þó er ljóst að ekki nást þær sendingar alls staðar á landinu þar sem gervitunglin eru á jarðstöðubraut í um 36 þúsund km hæð yfir miðbaug og eru því ekki hátt á lofti séð frá Íslandi. Sjónlínu þarf frá móttökustað í gervitunglið og hæðir, fjöll og byggingar geta því skyggt á.
    Viðbrögð við tilraunasendingunum voru skjót, jákvæð og gríðarmikil og svo vonbrigði að ekki væri um reglubundnar útsendingar að ræða. Talið er að hundruð sjómanna hafi fylgst með útsendingunum og að fjöldi Íslendinga erlendis hafi skipt þúsundum. Einnig heyrðist frá fólki á Íslandi sem hefur gervitungladisk en býr utan þess svæðis sem dreifikerfið nær til. Dagskrá tengd alþingiskosningunum ýtti verulega undir áhuga á tilraunasendingunum.
    Af framansögðu er ljóst að gervitunglasendingar munu stórauka og bæta dreifingu Ríkisútvarpsins og ná til flestra þeirra sem nú fá lélega eða enga þjónustu. Þar má nefna íbúa afskekktra býla, sjómenn á hafi úti, sumarbústaðaeigendur og Íslendinga erlendis.
    Leita verður allra leiða til að koma sendingum þessara fjölmiðla til sem flestra Íslendinga.