Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 223. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 226  —  223. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um göng undir Bakkaselsbrekku og hábungu Öxnadalsheiðar.

Frá Örlygi Hnefli Jónssyni.



     1.      Væri hagkvæmt með tilliti til umferðaröryggis og þungaflutninga að gera göng undir Bakkaselsbrekku og hábungu Öxnadalsheiðar?
     2.      Hve löng þyrftu slík göng að vera til að tryggja greiðari og öruggari umferð en nú?
     3.      Hver væri kostnaðurinn við slík göng?


Skriflegt svar óskast.