Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 229, 131. löggjafarþing 206. mál: varnir gegn mengun hafs og stranda (mengunarlögsaga).
Lög nr. 114 29. október 2004.
Þingskjal 229, 131. löggjafarþing 206. mál: varnir gegn mengun hafs og stranda (mengunarlögsaga).
Lög nr. 114 29. október 2004.
Lög um breytingu á lögum nr. 33/2004, um varnir gegn mengun hafs og stranda.
1. gr.
Orðin „í landhelgi“ í 1. mgr. 2. gr. laganna falla brott.2. gr.
10. tölul. 3. gr. laganna orðast svo: Mengunarlögsaga Íslands: Hafsvæðið sem nær yfir innsævi að meðtalinni strönd að efstu flóðmörkum á stórstraumsflóði, landhelgi og efnahagslögsögu, landgrunn Íslands og efstu jarðlög, sbr. lög um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn.3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 21. október 2004.