Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 151. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 232  —  151. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar um söluandvirði hlutabréfa í Fjölni á Þingeyri.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvert var söluandvirði hlutabréfa Byggðastofnunar í Fjölni á Þingeyri sem seld voru í mars sl.?

    Samkvæmt upplýsingum frá Byggðastofnun var söluandvirði hlutabréfa Byggðastofnunar í fiskvinnslunni Fjölni hf. 75 millj. kr.