Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 233. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 239  —  233. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um framkvæmdaáætlun um aðgengi fyrir alla.

Frá Þuríði Backman og Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hvenær má vænta að framkvæmdaáætlun um aðgengi fyrir alla verði kynnt?
     2.      Mun framkvæmdaáætlunin ná til fleiri þátta en ferlimála?
     3.      Verður lögð áhersla á hönnun fyrir alla?
     4.      Er unnið að tillögum um breytingar á lögum og reglugerðum sem lúta að aðgengismálum samhliða gerð framkvæmdaáætlunar?