Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 274. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 295  —  274. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um Kyoto-bókunina.

Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.



    Hvernig hyggjast stjórnvöld tryggja að losun gróðurhúsalofttegunda á árunum 2008–2012 fari ekki fram úr heimildum „íslenska ákvæðisins“ samkvæmt Kyoto-bókun loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna?