Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 307. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 335  —  307. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um styrki til að sporna við atvinnuleysi.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hversu mörg sveitarfélög hafa sótt um styrki til svæðisvinnumiðlana vegna sérstakra verkefna til að sporna við atvinnuleysi?
     2.      Hversu mörg sveitarfélög hafa fengið slíka styrki, hver er fjöldi verkefna á vegum þeirra og hver er skiptingin eftir landsvæðum?
     3.      Hversu margir voru á atvinnuleysisskrá annars vegar í þeim sveitarfélögum sem fengu styrki og hins vegar þeim sem fengu ekki styrki?


Skriflegt svar óskast.