Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 369. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 433  —  369. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um vegagerð á Uxahryggjaleið.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.



     1.      Hve miklu fé hefur verið varið til vegagerðar á Uxahryggjaleið, frá Meyjarsæti að Víðikerum, árin 2002 og 2003 og á þessu ári?
     2.      Hvaða opinberra leyfa hefur verið aflað vegna umræddrar vegagerðar?


Skriflegt svar óskast.