Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 379. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 464  —  379. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um utanlandsferðir lækna á kostnað lyfjafyrirtækja.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hversu margir læknar fara árlega í utanlandsferðir á kostnað lyfjafyrirtækja?
     2.      Hversu margir fara í slíkar ferðir á ári hverju:
                  a.      læknar á Landspítala – háskólasjúkrahúsi,
                  b.      læknar á öðrum sjúkrahúsum,
                  c.      læknar á heilsugæslustöðvum,
                  d.      sérfræðilæknar sem starfa annars staðar?
     3.      Hversu oft að meðaltali fer hver læknir í slíka ferð á ári?


Skriflegt svar óskast.