Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 383. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 471  —  383. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um Grunnafjörð.

Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.



    Telur ráðherra að uppbygging rafskautaverksmiðju á Katanesi samræmist skuldbindingum Íslands samkvæmt Ramsar-samþykktinni, í ljósi þess að Eiðisvatn, sem er innan þynningarsvæðisins, hefur afrennsli í Grunnafjörð?