Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 403. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 511  —  403. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um iðnaðarframleiddar transfitusýrur í matvælum.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hefur eitthvað verið gert til að draga úr magni iðnaðarframleiddra transfitusýra í matvælum?
     2.      Stendur til að ákvarða leyfilegt hámarksmagn iðnaðarframleiddra transfitusýra í mat og setja reglur um innihaldslýsingar á slíkri matvöru?