Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 414. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 548  —  414. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um aldraða á dvalar- og hjúkrunarheimilum.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Hve margir aldraðir eru á dvalarheimilum annars vegar og hjúkrunarheimilum hins vegar? Hve margir deila herbergi með öðrum, ef hjón eða sambýlisfólk er frátalið, og hve margir eru í einkaherbergjum?
     2.      Stendur til að endurskoða löggjöf um málefni aldraðra og banna að aldraðir deili herbergi með öðrum, sé ekki um maka að ræða?