Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 416. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 550  —  416. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um hjólreiðabrautir meðfram Vesturlandsvegi.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



    Hvaða áform eru uppi um umferð hjólandi vegfarenda um Vesturlandsveg eftir tvöföldun hans? Óskað er upplýsinga um breytingar á framkvæmdinni eftir fram komnar athugasemdir frá samtökum hjólreiðafólks.