Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 430. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 622  —  430. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um aðgerðir til að mæta mismunandi þörfum drengja og stúlkna í grunnskólum.

Frá Merði Árnasyni og Katrínu Júlíusdóttur.



    Hvað líður störfum nefndar sem fjallar um aðgerðir til að mæta mismunandi þörfum drengja og stúlkna í grunnskólum, settrar á fót eftir að Alþingi samþykkti þingsályktun þess efnis hinn 4. júní 1998 að frumkvæði Svanfríðar Jónasdóttur?