Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 451. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 700  —  451. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um samgöngur milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins.

Frá Merði Árnasyni.



     1.      Hvað er áætlað að ökutími verði að jafnaði langur milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins, t.d. miðað við núverandi Umferðarmiðstöð í Reykjavík, eftir að Reykjanesbraut hefur verið tvöfölduð?
     2.      Hvaða tillögur og hugmyndir hafa verið athugaðar um að stytta frekar umræddan ökutíma?