Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 452. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 701  —  452. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um hámarkshraða á tvöfaldri Reykjanesbraut.

Frá Jóni Gunnarssyni og Merði Árnasyni.



     1.      Telur ráðherra eðlilegt að hækka hámarkshraða ökutækja á tvöfaldri Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar?
     2.      Var gert ráð fyrir hækkun hámarkshraða við hönnun brautarinnar?
     3.      Kemur til greina að mati ráðherra að hafa mismunandi hámarkshraða sumar og vetur?