Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 454. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 703 — 454. mál.
til ráðherra Hagstofu Íslands um neysluútgjöld fjölskyldna.
1. Hvaða breytingar hafa orðið á neysluútgjöldum fjölskyldna eftir fjölskyldugerð samkvæmt neysluviðmiði Hagstofu Íslands sl. fimm ár samanborið við neysluvísitölu á þessu tímabili?
2. Hvernig hafa fimm stærstu liðirnir í neysluútgjöldum breyst innbyrðis árin 2000–2004 og hvaða þættir voru það?
3. Hver voru neysluútgjöld samkvæmt neysluviðmiði Hagstofu Íslands eftir fjölskyldugerð árið 2004 sem hlutfall af:
a. hæstu samsettu lífeyrisgreiðslum almannatrygginga,
b. hæsta launaflokki Eflingar fyrir dagvinnu (25. flokki eftir sjö ár hjá sama vinnuveitanda),
c. meðalatvinnutekjum árið 2004 samkvæmt útreikningum kjararannsóknarnefndar?
Skriflegt svar óskast.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 703 — 454. mál.
Fyrirspurn
til ráðherra Hagstofu Íslands um neysluútgjöld fjölskyldna.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.