Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 470. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 722  —  470. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um þróun á lóðaverði.

Frá Birki J. Jónssyni.



     1.      Hver hefur þróun lóðaverðs íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu verið árin 2000– 2005 og hvernig hefur verð á íbúðarhúsnæði þar þróast á sama tímabili?
     2.      Hver hefur þróun lóðaverðs á Akureyri verið árin 2000–2005 og hvernig hefur verð á íbúðarhúsnæði þar þróast á sama tímabili?
     3.      Telur ráðherra að lóðaverð íbúðarhúsnæðis hafi haft mikið að segja um þróun verðlags íbúðarhúsnæðis?