Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 497. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 759  —  497. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um flutningsjöfnunarsjóð olíuvara.

Frá Helga Hjörvar og Merði Árnasyni.



     1.      Í hvaða löndum á Evrópska efnahagssvæðinu, öðrum en Íslandi, eru starfræktir flutningsjöfnunarsjóðir olíuvara?
     2.      Hve miklu fé er varið til flutningsjöfnunar olíuvara á hvern íbúa á Íslandi annars vegar og í öðrum löndum Evrópska efnahagssvæðisins hins vegar?
     3.      Er beitt öðrum aðferðum við flutningsjöfnun í öðrum löndum Evrópska efnahagssvæðisins? Ef svo er, í hvaða löndum, með hvaða aðferðum og í hve miklum mæli?


Skriflegt svar óskast.