Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 499. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 761  —  499. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.

Frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni.



     1.      Hyggst ráðherra grípa til einhverra aðgerða til að koma í veg fyrir að skurðstofu Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja verði lokað í a.m.k. sex vikur í sumar?
     2.      Hyggst ráðherra sjá til þess að svokölluð G-II bakvakt heilsugæslulækna við stofnunina, sem felld var niður um síðustu áramót, verði tekin upp að nýju?