Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 507. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 772  —  507. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um flugsamgöngur til Ísafjarðarbæjar.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hve oft hefur flug til Ísafjarðar fallið niður sl. fimm ár, skipt niður eftir árum og mánuðum?
     2.      Hve oft hefur verið lent á Þingeyrarflugvelli þegar ófært hefur verið til Ísafjarðar á sama tímabili, skipt eftir árum og mánuðum?
     3.      Hvaða úrbætur yrði að gera á Þingeyrarflugvelli til að hann gæti að fullu þjónað sem varavöllur fyrir Ísafjarðarflugvöll og hvað yrði samfara því mikill stofnkostnaður annars vegar og rekstrarkostnaður hins vegar?