Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 518. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 787  —  518. mál.




Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um stuðning við börn flutningsskyldra starfsmanna.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hvernig er háttað stuðningi við börn flutningsskyldra starfsmanna í utanríkisþjónustunni við heimkomu eftir búsetu erlendis, t.d. hvað varðar skólagöngu og félagslega aðlögun?
     2.      Er starfandi sérstakur fjölskylduráðgjafi í utanríkisráðuneytinu? Ef ekki, mun ráðherra beita sér fyrir því að svo verði?