Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 519. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 788  —  519. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hversu mikið fjármagn er til ráðstöfunar á þessu ári til viðbyggingar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands?
     2.      Hver er áætlaður verkáfangi á þessu ári?
     3.      Hver er áætlaður heildarkostnaður?
     4.      Hefur fé verið tryggt til verksins?
     5.      Hvenær má vænta verkloka?