Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 398. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 795  —  398. mál.




Breytingartillögur



við frv. til l. um afnám laga nr. 53/2002, um Tækniháskóla Íslands, með síðari breytingum.

Frá 1. minni hluta menntamálanefndar (BjörgvS, MÁ, KJúl).



     1.      Við bætist ný grein, 3. gr., svohljóðandi:
             Við 3. málsl. 3. gr. laga nr. 136/1997, um háskóla, bætist: og skulu þeir þá vera sjálfseignarstofnanir.
     2.      Heiti frumvarpsins verði: Frumvarp til laga um afnám laga nr. 53/2002, um Tækniháskóla Íslands, með síðari breytingum, og breyting á lögum nr. 136/1997, um háskóla.