Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 542. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 821  —  542. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um einkarekna grunnskóla.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Er von á almennri löggjöf um einkarekna grunnskóla, þ.e. skóla sem reknir eru af öðrum en opinberum aðilum, utan ramma hverfisskólanna?
     2.      Ætti í slíkri löggjöf að mati ráðherra að
                  a.      samræma framlög til slíkra skóla,
                  b.      takmarka eða banna innheimtu skólagjalda ofan á opinbera framlagið?