Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 562. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 849  —  562. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um fíkniefni í fangelsum.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hvað hefur verið gert í fangelsum til að stemma stigu við neyslu:
              a.      ólöglegra fíkniefna,
              b.      löglegra fíkniefna og ávísaðra lyfja?
     2.      Hversu margir fangar urðu uppvísir að eiturlyfjaneyslu í fangelsum á síðasta ári og á hvern hátt var brugðist við því?