Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 574. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 862  —  574. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um kostnað við breikkun Suðurlandsvegar.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Hver er áætlaður kostnaður:
              a.      við að tvöfalda Suðurlandsveg frá Rauðavatni að Selfossi,
              b.      við að leggja þríbreiðan veg frá Rauðavatni að Selfossi,
              c.      við að lýsa Suðurlandsveg frá Rauðavatni að Selfossi?
     2.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að breikkun og lýsing Suðurlandsvegar verði tekin upp í samgönguáætlun?