Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 589. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 881  —  589. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um skipan nefndar sem móti stefnu á sviði þróunarsamvinnu Íslands við önnur ríki.

Flm.: Þórunn Sveinbjarnardóttir, Siv Friðleifsdóttir, Drífa Hjartardóttir,
Kolbrún Halldórsdóttir, Magnús Þór Hafsteinsson,
Guðrún Ögmundsdóttir, Þuríður Backman.


    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd fimm sérfræðinga sem móti stefnu Íslands í þróunarsamvinnu við fátæk ríki. Eftirtaldir aðilar tilnefni einn fulltrúa hver til setu í nefndinni: mannfræðiskor Háskóla Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, Þróunarsamvinnustofnun Íslands og utanríkisráðuneytið en fulltrúi þess gegni jafnframt formennsku. Nefndin ráði sér starfsmann og utanríkisráðherra skili Alþingi skýrslu um niðurstöður hennar innan árs frá samþykkt tillögu þessarar.
    Nefndin hafi fimm atriði að leiðarljósi við störf sín, stefnumótun og forgangsröðun verkefna á sviði þróunarsamvinnu Íslands við önnur ríki:
     1.      Nauðsyn þess að efla menntun, mannréttindi og frelsi kvenna og stúlkubarna um allan heim.
     2.      Nauðsyn þess að styðja við uppbyggingu almennrar heilsugæslu í fátækum löndum og aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir algenga sjúkdóma, svo sem alnæmi, berkla og malaríu.
     3.      Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun sem samþykkt voru árið 2000.
     4.      Hvernig megi efla samvinnu við frjáls félagasamtök með reglulegum framlögum samkvæmt rammasamningum.
     5.      Þörf þess að endurskoða lög um Þróunarsamvinnustofnun Íslands í ljósi niðurstaðna nefndarinnar og tillögur verði gerðar þar um.
    Nefndin taki í störfum sínum mið af því sem best gerist í svipaðri stefnumótun í nágrannalöndum, t.d. á vegum annarra norrænna þróunarsamvinnustofnana. Einnig hafi hún til hliðsjónar niðurstöður álitsgerðarinnar Ísland og þróunarlöndin sem kom út 1. september 2003.

Greinargerð.


    Til þess að þróunarsamvinna við fátæk ríki skili mælanlegum og góðum árangri þurfa markmið að vera skýr og verkefni vel skilgreind. Til grundvallar þarf að liggja mótuð stefna stjórnvalda til langs tíma sem er í samræmi við samþykkt alþjóðleg markmið. Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) starfar samkvæmt lögum nr. 43 frá árinu 1981. Hingað til hefur ÞSSÍ, lögum samkvæmt, einungis getað tekið þátt í tvíhliða verkefnum á sviði þróunarsamvinnu. Flutningsmenn eru þeirrar skoðunar að huga þurfi betur að kostum þess að íslenska ríkið leggi meira af mörkum á sviði fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu og þá einnig með hvaða hætti slík samvinna ætti að fara fram. Þeir telja einnig brýnt að koma á samvinnu við frjáls félagasamtök og nýta þekkinguna sem í þeim býr. Þátttaka í fjölþjóðlegum verkefnum ellegar beinar fjárveitingar til ákveðinna verkefna á vegum viðurkenndra alþjóðlegra stofnana og félagasamtaka koma einnig til greina.
    Hinn 28. maí 1985 ályktaði Alþingi um þróunaraðstoð Íslands. Þá var samþykkt að á næstu sjö árum skyldi með reglubundinni aukningu framlaga náð því marki að opinber framlög Íslands til uppbyggingar í þróunarríkjum yrðu 0,7% af þjóðarframleiðslu. Sem kunnugt er hefur þetta markmið ekki náðst. Árið 1996 (á 121. löggjafarþingi) fluttu þingmennirnir Steingrímur J. Sigfússon og Margrét Frímannsdóttir tillögu til þingsályktunar um aukið framlag til þróunarsamvinnu en hún var aldrei afgreidd frá utanríkismálanefnd Alþingis.
    Fjárframlög til þróunarmála hafa þokast í rétta átt en samt eiga Íslendingar mjög langt í land með að ná viðmiði Sameinuðu þjóðanna um að framlög til þróunarmála verði 0,7% af vergri þjóðarframleiðslu. Árið 2001 voru framlög íslenska ríkisins til þróunarmála 0,12% af vergri þjóðarframleiðslu en árið 2004 náðu þau 0,19%. Í munnlegri skýrslu til Alþingis í nóvember 2004 lýsti utanríkisráðherra því yfir að ríkisstjórnin hefði sett sér það markmið að stighækka framlögin til þróunarsamvinnu þannig að árið 2009 næðu þau 0,35% af vergri þjóðarframleiðslu.
    Eðli þróunarsamvinnu krefst þess að markmið séu sett til langs tíma, t.d. til 5–10 ára, en endurskoðuð með jöfnu millibili. Í ljósi markmiðs ríkisstjórnarinnar þykir flutningsmönnum skynsamlegt að stefna að því að framlög til þróunarsamvinnu nái viðmiði Sameinuðu þjóðanna um 0,7% af vergri þjóðarframleiðslu á einum áratug, eða á árabilinu 2005–2015.
    Forsenda þess að árangur náist er að heimamenn séu hafðir með í ráðum og að þarfir þeirra stýri för. Samstarfsverkefni sem byggjast einvörðungu á hagsmunum gefandans reynast oft gagnslítil eins og dæmin sanna. Þróunarsamvinnuverkefni sem skila raunverulegum árangri einkennast af mikilli undirbúningsvinnu og nánu samstarfi við fólkið sem tekur þátt í þeim. Það ber vott um fagleg og góð vinnubrögð að kanna fyrst hvar þörfin er mest í einhverju tilteknu landi áður en menn bjóða fram aðstoð sína. Stundum getur líka þurft að ljúka verkefnum sem aðrir hófu eða ganga inn í samvinnu sem þegar er fyrir hendi. Matið á því hvað best sé að gera hlýtur alltaf að byggjast á hagsmunum heimamanna. Val samvinnuverkefna verður því að byggjast á skýrri stefnu og raunsæjum langtímamarkmiðum. Gæta þarf jafnvægis á milli tvíhliða og fjölhliða aðstoðar og þeirra fjármuna sem varið er í gegnum frjáls félagasamtök. Einnig þarf að gera skýran greinarmun á þróunarverkefnum og neyðaraðstoð.
    Og verkefnin eru að sönnu næg. Menntun stúlkubarna og kvenna í þriðja heiminum er að áliti flutningsmanna algjört forgangsmál. Einnig uppbygging heilsugæslu og forvarnafræðsla á þeim svæðum þar sem alnæmisfaraldurinn geisar. Þá má finna fjölmörg brýn verkefni á öðrum sviðum, t.d. á sviði umhverfis- og orkumála, eða við uppbyggingu stjórnsýslu.
    Aðildarríki Sameinuðu þjóðanna samþykktu svokölluð þúsaldarmarkmið árið 2000, markmið sem eiga að nást árið 2015 (sjá fylgiskjal I). Þetta eru skýr, tölusett markmið sem öll ríki verða að taka mið af í utanríkisstefnu sinni og þróunarverkefnum. Og verkefnin eru nærtæk. Efst á blaði er baráttan gegn fátækt, gegn barna- og mæðradauða. Grunnmenntun öllum til handa og jafn réttur karla og kvenna eru einnig grundvallaratriði í markmiðunum. Það er vel við hæfi að íslensk stjórnvöld setji sér markmið á sviði þróunarsamvinnu sem eru hluti af þúsaldarverkefnum Sameinuðu þjóðanna. Aðeins þannig má ætla að raunhæfur árangur náist í þróunarsamvinnu á milli ríkra og snauðra landa.


Fylgiskjal I.


Þúsaldarmarkmið um þróun.


     1.      Eyða fátækt og hungri.
          Lækka hlutfall þess fólks sem býr við örbirgð um helming á tímabilinu 1990 til 2015. Lækka hlutfall þeirra sem búa við hungursneyð um helming á sama tímabili.
     2.      Öll börn njóti grunnskólamenntunar árið 2015.
          Tryggja að bæði stúlkur og drengir ljúki grunnskólanámi.
     3.      Vinna að jafnrétti kynjanna og styrkja frumkvæðisrétt kvenna.
          Eyða kynjamisrétti til skólagöngu í grunn- og framhaldsskólum fyrir árið 2005 og á öllum skólastigum fyrir 2015.
     4.      Lækka dánartíðni barna.
          Lækka tíðni ungbarnadauða um tvo þriðju á tímabilinu 1990 til 2015.
     5.      Vinna að bættu heilsufari kvenna.
          Lækka dánartíðni vegna barnsburðar (maternal mortality) um þrjá fjórðu á tímabilinu 1990 til 2015.
     6.      Berjast gegn alnæmi, malaríu og öðrum sjúkdómum sem ógna mannkyninu.
          Snúa við útbreiðslu eyðni, malaríu og annarra sjúkdóma fyrir árið 2015.
     7.      Vinna að sjálfbærri þróun.
          Framkvæma ríkjaáætlanir um sjálfbæra þróun fyrir árið 2005 og snúa þannig við neikvæðri þróun umhverfisáhrifa fyrir árið 2015.
          Lækka um helming hlutfall þeirra sem ekki hafa aðgang að hreinu drykkjarvatni á tímabilinu 1990 til 2015.
          Stuðla að bættum lífsskilyrðum a.m.k. 100 milljón íbúa í fátækrahverfum stórborga.
     8.      Styrkja hnattræna samvinnu um þróun.
          Vinna frekar að opnu og sanngjörnu viðskipta- og fjármálakerfi sem byggir á skýrum reglum.
          Taka á málefnum fátækustu þróunarlandanna, m.a. með því að leggja af innflutningsgjöld og kvóta á útflutningsvörur þeirra, leysa skuldabyrði landanna með lækkun skulda, og með auknum framlögum til opinberrar þróunaraðstoðar.
          Taka tillit til sérstöðu landluktra landa og smárra eyþjóða.
          Vinna með lyfjaiðnaðinum að því að veita fátækum þjóðum aðgang að mikilvægum lyfjum.
          Vinna að því ásamt einkageiranum að veita þróunarlöndum aðgang að nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni.



Fylgiskjal II.


Hermann Örn Ingólfsson
og Jónas H. Haralz:


Úr skýrslunni „Ísland og þróunarlöndin – Álitsgerð um þróunarsamvinnu Íslands
og þátttöku í starfi alþjóðastofnana“ (28. júlí 2003).


Viðauki 3: Framlög Íslands til þróunarmála 1999 til 2003.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


Viðauki 4: Hugmynd um framlag til þróunarmála árið 2006.



Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.