Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 609. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 912  —  609. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um haf-, fiski- og rækjurannsóknir í Arnarfirði.

Frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni.



     1.      Hver hefur verið árlegur heildarkostnaður við haf-, fiski- og rækjurannsóknir í Arnarfirði síðan árið 1999, reiknað til núvirðis?
     2.      Hve miklum fjárhæðum hyggjast stjórnvöld verja til slíkra rannsókna í Arnarfirði á þessu ári?
     3.      Liggja fyrir áætlanir um að auka rannsóknir í firðinum og ef svo er, hvaða rannsóknir eru það, sundurliðað eftir verkefnum, og hvernig verða þær fjármagnaðar?


Skriflegt svar óskast.