Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 624. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 942  —  624. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um varnarviðbúnað við eiturefnaárás.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Hverjar eru niðurstöður skýrslu starfshóps embættismanna á vegum þriggja ráðuneyta, sem fjallaði um varnarviðbúnað vegna hugsanlegrar notkunar eiturefna-, sýkla- og geislavopna hér á landi?
     2.      Hvenær lágu niðurstöðurnar fyrir?
     3.      Af hverju hafa niðurstöðurnar ekki verið kynntar almenningi?