Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 631. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 961  —  631. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um flutning launaútreikninga og launabókhalds heilbrigðisstofnana frá landsbyggðinni.

Frá Kristjáni L. Möller.



     1.      Er áætlað að flytja launaútreikninga og launabókhald sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva frá landsbyggðinni í miðlægt kerfi?
     2.      Eru hugmyndir um að flytja önnur verkefni frá sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum landsbyggðarinnar til Reykjavíkur?