Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 644. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 975 —  644. mál.




Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 36/1982, um Sinfóníuhljómsveit Íslands.

(Lagt fyrir Alþingi á 131. löggjafarþingi 2004–2005.)



1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
     a.      Í stað hlutfallstölunnar „56%“ í a-lið 1. mgr. kemur: 81%.
     b.      B-liður 1. mgr. fellur brott.

2. gr.

    Í stað orðsins „Ríkisútvarpinu“ í 1. málsl. 4. gr. laganna kemur: menntamálaráðuneytinu.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frumvarp þetta er flutt með það fyrir augum að fella niður ákvæði laga um Ríkisútvarpið er varðar þátttöku þess í rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
    Með lögum nr. 36/1982, um Sinfóníuhljómsveit Íslands, var mælt fyrir um hvernig standa skyldi að rekstri sinfóníuhljómsveitarinnar. Skv. 1. mgr. 3. gr. laganna var mælt fyrir um greiðsluþátttöku eftirfarandi aðila og var hún svohljóðandi:

         Aðili                  Greiðsluþátttaka
     a.      Ríkissjóður     56%
     b.      Ríkisútvarpið     25%
     c.      Borgarsjóður Reykjavíkur     18%
     d.      Bæjarsjóður Seltjarnarness     1%

    Frumvarp þetta er liður í endurskipulagningu á rekstri Ríkisútvarpsins. Í menntamálaráðuneytinu hefur verið unnið að samningu frumvarps þar sem ráðgert er að breyta rekstri Ríkisútvarpsins þannig að sameignarfélag verði stofnað og taki við rekstri þess. Með frumvarpinu er ráðgert að fella úr gildi þá lagaskyldu sem falist hefur í b-lið 1. mgr. 3. gr. laga nr. 36/1982, um Sinfóníuhljómsveit Íslands. Að teknu tilliti til þessarar breytingar er eðlilegt að Ríkisútvarpið eigi ekki lengur fulltrúa í stjórn hljómsveitarinnar og því er lagt til að menntamálaráðuneytið tilnefni mann í stjórn.
    Í ljósi þessa er lagt til með frumvarpi þessu að sú lagaskylda sem hvílt hefur á Ríkisútvarpinu að greiða 25% af rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitar Íslands verði felld niður og að framlag ríkissjóðs hækki sem nemur framlagi Ríkisútvarpsins, þ.e. úr 56% í 81%.



Fylgiskjal.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 36/1982,
um Sinfóníuhljómsveit Íslands.

    Frumvarpið er lagt fram í tengslum við frumvarp til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið. Það felur í sér tillögu um að ríkissjóður beri 25% hlut Ríkisútvarpsins í rekstri hljómsveitarinnar og breytingar á skipan stjórnar sem þessu tengjast. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er áætlað að það auki útgjöld ríkisins um 118,5 m.kr. á ári m.v. forsendur í fjárlögum fyrir árið 2005.