Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 663. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1007  —  663. mál.




Frumvarp til laga



um veitingu ríkisborgararéttar.

Frá allsherjarnefnd.



1. gr.

    Ríkisborgararétt skal öðlast: Fischer, Robert James, f. 9. mars 1943 í Bandaríkjunum.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.


    Allsherjarnefnd leggur til að Robert James Fischer (Bobby Fischer) fái íslenskan ríkisborgararétt en skv. 6. gr. laga um ríkisborgararétt, nr. 100/1952, veitir Alþingi ríkisborgararétt með lögum.