Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 672. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1025  —  672. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um vegbætur á Hellisheiði og Suðurstrandarveg.

Frá Kjartani Ólafssyni.



     1.      Hver er áætlaður kostnaður við að
                  a.      bæta þriðju akrein við 3 km kafla þar sem Hellisheiði er hæst,
                  b.      bæta þriðju akrein við 5,5 km kafla frá Litlu kaffistofunni að Lögbergsbrekku?
     2.      Hver er áætlaður kostnaður við að leggja Suðurstrandarveg frá Þorlákshöfn í Selvog eftir að lokið hefur verið tengingu við Þorlákshöfn?